id
stringlengths
1
5
text
stringlengths
0
1.19k
ner_entities
listlengths
0
54
pii_entities
listlengths
0
51
100
Kristin trú verður aldrei skilin til fulls nema í sögulegu ljósi vegna þess að höfundur lífsins hefur stigið inn í sögu okkar og sína eigin og spinnur ævivefinn með okkur.
[]
[]
101
Þessi saga er orðin nokkuð löng og eins og í mörgum góðum sögum gengur á ýmsu í samskiptum sögupersónanna.
[]
[]
102
Á þessari ferð um veg lífsins sem hvorki er lagður í botngöng né heldur um mislæg gatnamót er saga meistarans frá Nasaret okkur sem leiðakerfi.
[ { "start": 114, "end": 121, "label": "Location", "text": "Nasaret" } ]
[ { "start": 114, "end": 121, "label": "street_address", "text": "Nasaret", "source": "gold" } ]
103
Við rýnum í ýmsar línur í þessu kerfi og sumar eru daufar og aðrar skýrar.
[]
[]
104
Okkar er að lesa úr þeim og túlka.
[]
[]
105
Við erum á ferð í lífinu og höfum traustan leiðsögumann með okkur.
[]
[]
106
Kristin trú er hvorki hávaðasöm né væmin.
[]
[]
107
Hún er bjartsýn og djörf.
[]
[]
108
Kannski karlmannleg og ofur lítið kvenleg - eða kvenleg og ofur lítið karlmannleg.
[]
[]
109
Lætur ekki undan síga, gefst ekki upp frekar en kærleikurinn.
[]
[]
110
Hún lætur ekki heldur múra sig inni í ofstæki samtíningslegrar bókstafstrúar eða logsjóða sig við dularfullar kennisetningar.
[]
[]
111
Kristin manneskja getur ekki lagt frásagnir af Jesú Kristi á hilluna vegna þess að hún sé búin að lesa þær.
[ { "start": 47, "end": 58, "label": "Person", "text": "Jesú Kristi" } ]
[ { "start": 47, "end": 58, "label": "person_name", "text": "Jesú Kristi", "source": "gold" } ]
112
Kjarni trúarinnar er Jesús Kristur og frásagnirnar af honum eru ekki lesnar í eitt skipti fyrir öll eins og einhver tískureyfari.
[ { "start": 21, "end": 34, "label": "Person", "text": "Jesús Kristur" } ]
[ { "start": 21, "end": 34, "label": "person_name", "text": "Jesús Kristur", "source": "gold" } ]
113
Frásagnirnar eru nefnilega sígildar í anda Njálu og Shakespears en ólíkt djúpri speki þeirra geyma þær dýpri speki eða speki spekinnar: Sögu Guðs og manns í heiminum.
[ { "start": 43, "end": 48, "label": "Miscellaneous", "text": "Njálu" }, { "start": 52, "end": 63, "label": "Person", "text": "Shakespears" }, { "start": 141, "end": 145, "label": "Person", "text": "Guðs" } ]
[ { "start": 52, "end": 63, "label": "person_name", "text": "Shakespears", "source": "gold" }, { "start": 141, "end": 145, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" } ]
114
Sögu sem hver og einn þarf að túlka.
[]
[]
115
Þessi saga segir frá grundvelli trúarinnar og er heimild um hana.
[]
[]
116
Hún verður lifandi þegar hún er lesin - ekki bara einu sinni heldur aftur og aftur.
[]
[]
117
Spyrja þarf spurninga þegar texti er lesinn, láta textann spyrja sig og lesa sig.
[]
[]
118
Á þann hátt verður trúin lifandi samtal við Guð en rykfellur ekki eða liggur bundin í ógæfulegu samsafni vanahugmynda.
[ { "start": 44, "end": 47, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 44, "end": 47, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
119
Trúin mótar viðhorf okkar til lífsins sem felst í því að við þorum að segja upphátt og kinnroðalaust að við séum kristnar manneskjur og höfum dirfsku til ganga fram í heiminum með útrétta hjálparhönd til þeirra er minna mega sín.
[]
[]
120
Já, hrópa svo hátt að það yfirgnæfir glasaglamm samkvæmisins þar sem gruggugar lífsskoðanir fljóta og sumar meira ættskotnar náskoli en góðu og sterku kaffi á mjúkum og fuglglöðum morgni.
[]
[]
121
01/06/2006
[ { "start": 0, "end": 10, "label": "Date", "text": "01/06/2006" } ]
[]
122
Hvíldarstaður
[]
[]
123
Það er ekki bara á vettvangi veraldar þar sem átök eiga sér stað og ólíkar skoðanir takast á.
[]
[]
124
Ekki bara þar sem tími friðar og hamingju gengur annað slagið í garð eða staldrar þó nokkuð lengi við.
[]
[]
125
Það er nefnilega til annar vettvangur sem er ekki svo ýkja fjarri okkur sjálfum (og þar eru oft miklar sviptingar) og það er hugur okkar.
[]
[]
126
Hann er veröld út af fyrir sig eða kannski öllu heldur höfuðbækistöðvar okkar í lífsbaráttunni.
[]
[]
127
Hugur sem virðist vera samofinn líkamanum, holdinu, óáþreifanlegur en þó er hann þarna og skiptir öllu máli.
[]
[]
128
Þar eru stórar og smáar ákvarðanir teknar, þar er málum velt fram og aftur og síðan hafist handa - eða ekkert látið að gert.
[]
[]
129
Þessar bækistöðvar hafa ekki orðið til á einni nóttu heldur hafa þær byggst upp á ævi okkar sem er orðin mislöng.
[]
[]
130
Inn í bækistöðvar þessar berast ógrynnin öll af hvers kyns skilaboðum á hverri sekúndu sem við vinnum úr eða geymum til betri tíma.
[]
[]
131
Iðulega streyma þangað boð sem við meira að segja ráðum ekki við og snerta tilfinningar okkar en eins og öllum er kunnugt um þá er harla erfitt að kortleggja þær nákvæmlega.
[]
[]
132
Og sjálfur hugurinn enda þótt opinn sé og móttækilegur geymir líka dimm skúmaskot þar sem leyndarmálin liggja.
[]
[]
133
Leyndarmál sem segja kannski hver við erum.
[]
[]
134
En tíminn gengur á líkamann og við sjáum hvernig hann þeytir honum til og frá.
[]
[]
135
Hugurinn sveiflast einnig fram og aftur, er alla jafna síkvikur eða festir sig í einhverju fari þar sem hann telur vera öruggt.
[]
[]
136
Sá hugur sem nær að haldast heill og óbrjálaður þrátt fyrir að líkaminn sem hann dvelur í sé farinn að hrörna og bogna er talinn spakur og nýtur iðulega ómældrar virðingar hver sem kann að eiga þann huga.
[]
[]
137
Öldungurinn er ætíð með einhvern viskuglampa í djúpu auga þó elligul höndin sé kreppt.
[]
[]
138
Oft er sem manneskjan svífi um á vettvangi hversdagsins með annarlegan svip í andliti og jafnvel kvíðafullan - og hugurinn hvikull eða staðfastur.
[]
[]
139
Hún veit að hversdagurinn þar sem hún mæðist í mörgu er tímabundinn viðkomustaður þegar öllu er á botninn hvolft og sömuleiðis jafnvel líkaminn - brothætt geymsluhólf hugans.
[]
[]
140
Þessar staðreyndir vekja upp í huganum ýmsar spurningar sem erfitt getur verið að sjá hvar eigi upphaf sitt, hvort heldur í öllum þeim boðum sem hafa flætt inn í hugann eða hvort megi líta á þær sem afurð af öllu því efni sem hefur hlaðist upp í huganum - nema hvort tveggja sé.
[]
[]
141
Efni og andi?
[]
[]
142
Sál og líkami?
[]
[]
143
Ein heild eða tvær?
[]
[]
144
Ósjálfrátt - eða sjálfrátt?
[]
[]
145
- fer manneskjan að leita að nýjum hvíldarstað fyrir huga sinn þar sem hún þrátt fyrir allt telur hann vera varanlegri (eða úr dýrmætara efni þó mótsagnakennt kunni að hljóma) heldur en þessi efnislíkami sem er ekki annað en fljótandi efni að langmestu leyti.
[]
[]
146
Eða: Hugurinn, svo óefniskenndur sem hann er í eðli sínu, verður í raun efniskenndari en hinn efniskenndi líkami vegna þeirrar hugsunar að hann sé varanlegri en líkaminn sem tímans tönn nartar sleitulaust í.
[]
[]
147
Eitt af mörgum boðum sem berast huganum er að honum sé búinn hvíldarstaður sem fyrirbærið trú talar um.
[]
[]
148
Manneskjan fær fljótt vitneskju um að í þessum heimi og utan hans sé jafnvel annar veruleiki.
[]
[]
149
Að þessi heimur sé meira að segja ekki eins og til hafi verið ætlast í upphafi.
[]
[]
150
Það hafi orðið nánast nokkurs konar skammhlaup sem kom öllu í uppnám.
[]
[]
151
En þrátt fyrir þessar gangtruflanir veraldar sé hinn mikli vélameistari að störfum og muni hann koma öllu í lag vegna þess að honum sé annt um heiminn og manninn.
[]
[]
152
Þær frásagnir sem segja frá þessu tilheyri flokki trúrita - rita sem fjalla meðal annars um þá vegi og þær hugsanir sem:... eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn.
[ { "start": 187, "end": 195, "label": "Person", "text": "Drottinn" } ]
[ { "start": 187, "end": 195, "label": "person_name", "text": "Drottinn", "source": "gold" } ]
153
Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.
[]
[]
154
(Jesaja 55.8-9).
[ { "start": 1, "end": 7, "label": "Person", "text": "Jesaja" } ]
[ { "start": 1, "end": 7, "label": "person_name", "text": "Jesaja", "source": "gold" } ]
155
Engu að síður er vettvangur manneskjunnar þessi veröld og þar hefur hún næg verkefni að vinna.
[]
[]
156
Hugurinn tekst á við trúna og efann.
[]
[]
157
Oft verða átökin býsna hörð og ekki ætíð ljóst hvor vinnur, trúin eða efinn.
[]
[]
158
27/04/2006
[ { "start": 0, "end": 10, "label": "Date", "text": "27/04/2006" } ]
[]
159
Helgihald í fangelsum um páska
[]
[]
160
Helgihald í fangelsum landsins á vegum fangaprests þjóðkirkjunnar verður með eftirfarandi hætti hinn 16. apríl, páskadag:
[ { "start": 101, "end": 120, "label": "Date", "text": "16. apríl, páskadag" } ]
[]
161
Páskaguðsþjónusta á Litla-Hrauni kl. 11
[ { "start": 20, "end": 32, "label": "Organization", "text": "Litla-Hrauni" }, { "start": 33, "end": 39, "label": "Time", "text": "kl. 11" } ]
[ { "start": 20, "end": 32, "label": "company_name", "text": "Litla-Hrauni", "source": "gold" } ]
162
Páskaguðsþjónusta á Réttargeðdeildinni að Sogni kl. 13
[ { "start": 20, "end": 47, "label": "Organization", "text": "Réttargeðdeildinni að Sogni" }, { "start": 48, "end": 54, "label": "Time", "text": "kl. 13" } ]
[ { "start": 20, "end": 47, "label": "company_name", "text": "Réttargeðdeildinni að Sogni", "source": "gold" } ]
163
Páskaguðsþjónusta í Hegningarhúsinu kl. 15
[ { "start": 20, "end": 35, "label": "Organization", "text": "Hegningarhúsinu" }, { "start": 36, "end": 42, "label": "Time", "text": "kl. 15" } ]
[ { "start": 20, "end": 35, "label": "company_name", "text": "Hegningarhúsinu", "source": "gold" } ]
164
Páskaguðsþjónusta í Kópavogsfangelsinu kl. 16
[ { "start": 20, "end": 38, "label": "Organization", "text": "Kópavogsfangelsinu" }, { "start": 39, "end": 45, "label": "Time", "text": "kl. 16" } ]
[ { "start": 20, "end": 38, "label": "company_name", "text": "Kópavogsfangelsinu", "source": "gold" } ]
165
Um undirleik í guðsþjónustunum sér Hannes Þ. Guðrúnarson, klassískur gítarleikari og tónmenntakennari.
[ { "start": 35, "end": 56, "label": "Person", "text": "Hannes Þ. Guðrúnarson" } ]
[ { "start": 35, "end": 56, "label": "person_name", "text": "Hannes Þ. Guðrúnarson", "source": "gold" } ]
166
Fangaprestur fer í dymbilviku í fangelsið að Kvíabryggju og á Akureyri.
[ { "start": 45, "end": 56, "label": "Location", "text": "Kvíabryggju" }, { "start": 62, "end": 70, "label": "Location", "text": "Akureyri" } ]
[ { "start": 45, "end": 56, "label": "street_address", "text": "Kvíabryggju", "source": "gold" }, { "start": 62, "end": 70, "label": "street_address", "text": "Akureyri", "source": "gold" } ]
167
06/04/2006
[ { "start": 0, "end": 10, "label": "Date", "text": "06/04/2006" } ]
[]
168
Að hugsa um Guð
[ { "start": 12, "end": 15, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 12, "end": 15, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
169
Allir menn leiða einhvern tímann hugann að Guði og spyrja sig ýmissa spurninga um veru hans.
[ { "start": 43, "end": 47, "label": "Person", "text": "Guði" } ]
[ { "start": 43, "end": 47, "label": "person_name", "text": "Guði", "source": "gold" } ]
170
Þessar spurningar eru nátengdar lífi mannanna í heiminum og leit þeirra að tilgangi.
[]
[]
171
Sumir eru fljótir að afskrifa Guð með ýmsum rökum og beygja sig bara hljóðalaust undir tilgangsleysi lífsins en aðrir nema staðar um stund og glíma við spurninguna um eðli hans og tilvist.
[ { "start": 30, "end": 33, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 30, "end": 33, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
172
Velta vöngum yfir stöðu mannsins í heiminum ef Guð er einhvers staðar á kreiki.
[ { "start": 47, "end": 50, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 47, "end": 50, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
173
Spyrja um tilgang Guðs með veraldarsiglingunni.
[ { "start": 18, "end": 22, "label": "Person", "text": "Guðs" } ]
[ { "start": 18, "end": 22, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" } ]
174
Á mörgum tímabilum mannkynssögunnar hafa menn talið að Guð væri handan tilverunnar - utan við hana.
[ { "start": 55, "end": 58, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 55, "end": 58, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
175
Fjarlægur og óræður.
[]
[]
176
Hann hefði vakið heiminn til lífs og látið sig síðan hverfa.
[]
[]
177
Litið kannski annað slagið á gangvirki heimsins til að sjá hvað væri á seyði.
[]
[]
178
Enn aðrir hafa talið Guð vera á ferli alls staðar í heiminum og ekki síst í náttúrunni.
[ { "start": 21, "end": 24, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 21, "end": 24, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
179
Sólin sem kom upp var sem heitt hjarta Guðs og máninn sem leið upp á himininn dularfull kveðja hans að kveldi dags.
[ { "start": 39, "end": 43, "label": "Person", "text": "Guðs" } ]
[ { "start": 39, "end": 43, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" } ]
180
Í andvara næturinnar gekk hann léttum skrefum til þess að vekja engan.
[]
[]
181
En hann var alls staðar - í öllu.
[]
[]
182
Sýnilegur en þó ósýnilegur - og kannski dálítið duttlungarfullur.
[]
[]
183
Enn aðrir hafa talið hann taka fullan þátt í framgangi sögunnar og jafnvel ávítt hann fyrir að vera full afskiptasamur.
[]
[]
184
Fyrri tíðar menn áttu sennilega í minni erfiðleikum en við sem þeytumst um í nútímanum að tala um Guð og hugsa um hann.
[ { "start": 98, "end": 101, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 98, "end": 101, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
185
Tilvist Guðs var svo sjálfsögð og varpaði ljósi á öll fyrirbæri heimsins - menn vísuðu bara til Guðs til að útskýra þau og fáir gátu svo sem andmælt eða lagt fram aðrar sennilegri skýringar.
[ { "start": 8, "end": 12, "label": "Person", "text": "Guðs" }, { "start": 96, "end": 100, "label": "Person", "text": "Guðs" } ]
[ { "start": 8, "end": 12, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" }, { "start": 96, "end": 100, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" } ]
186
En framfarir í vísindum og tækni ýttu smám saman út öllum útskýringum sem áttu rót sína hjá Guði.
[ { "start": 92, "end": 96, "label": "Person", "text": "Guði" } ]
[ { "start": 92, "end": 96, "label": "person_name", "text": "Guði", "source": "gold" } ]
187
Engu að síður voru óleyst mál látin liggja óhreyfð á borði Guðs.
[ { "start": 59, "end": 63, "label": "Person", "text": "Guðs" } ]
[ { "start": 59, "end": 63, "label": "person_name", "text": "Guðs", "source": "gold" } ]
188
Menn hafa sem sagt haft ýmsar hugmyndir um Guð, já svo margar að ógert var að benda á eina mynd af þeim aragrúa og segja: Þetta er Guð.
[ { "start": 43, "end": 46, "label": "Person", "text": "Guð" }, { "start": 131, "end": 134, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 43, "end": 46, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" }, { "start": 131, "end": 134, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
189
Hugmyndir manna um Guð hafa líka tekið stórstígum breytingum í aldanna rás og sumar náð fótfestu um lengri tíma en aðrar um skemmri.
[ { "start": 19, "end": 22, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 19, "end": 22, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
190
Hugsun kristinna manna um Guð stendur föstum fótum í fornum ritum.
[ { "start": 26, "end": 29, "label": "Person", "text": "Guð" } ]
[ { "start": 26, "end": 29, "label": "person_name", "text": "Guð", "source": "gold" } ]
191
Sennilega hafa fá rit verið jafnmikið rannsökuð sem þau.
[]
[]
192
Margvíslegir trúarstraumar eiga upptök sín í þeim og draga dám sitt af því hvaða augum menn líta ritningarnar.
[]
[]
193
Sumir trúa hverju orði sem þar stendur og fylla því raðir bókstafstrúarmanna en aðrir telja sig þurfa að túlka þau eða komast að því hvað höfundar þeirra ætluðu sér í raun og veru að færa fram.
[]
[]
194
Enn aðrir hafa fundið viðspyrnu í ritum sem byggja á hinum fornu ritningum eins og til dæmis dæmis ýmsum trúarjátningum sem eiga að draga fram kjarna trúarinnar og útskýra það sem óljóst kann að þykja eða hnykkja á öðru.
[]
[]
195
Kjarni kristinnar trúar er Jesús Kristur.
[ { "start": 27, "end": 40, "label": "Person", "text": "Jesús Kristur" } ]
[ { "start": 27, "end": 40, "label": "person_name", "text": "Jesús Kristur", "source": "gold" } ]
196
Öll þau rit sem við höfum í höndunum um hann eru mótuð af trú og eru í raun og veru trúboðsrit.
[]
[]
197
Hæpið er að blása trúarhugsun höfundanna á haf út og virða fyrir sér persónu Jesú frá Nasaret áður en höfundarnir og trúarsamfélag þeirra settu mark sitt á hana.
[ { "start": 77, "end": 93, "label": "Person", "text": "Jesú frá Nasaret" } ]
[ { "start": 77, "end": 93, "label": "person_name", "text": "Jesú frá Nasaret", "source": "gold" } ]
198
Frásögnunum verður ekki breytt - en þær verða ætíð viðfangsefni hugsunar okkar og þar er túlkun okkar eitt aðal tækið til að komast að því hver boðskapur þeirra er.
[]
[]
199
Túlkunin er lykill sem ekki má gleymast né týnast.
[]
[]